Naumur Stjörnusigur

Rakel Dögg Bragadóttir skýtur að marki.
Rakel Dögg Bragadóttir skýtur að marki. mbl.is/Golli

Stjarnan vann nauman 23:22 sigur á Val í Olís-deild kvenna í handbolta í dag en leikið var í TM-höllinni í Garðabæ. Stjarnan var 15:10 yfir í hálfleik en Valskonur gerðu þetta að spennandi leik í seinni hálfleik. 

Með sigrinum minnkaði Stjarnan muninn á toppliði Fram í tvö stig en Fram á leik til góða. Valur missti af tækifæri til að komast upp í 3. sæti og eru þær enn í 4. sæti þar sem þær sigla lygnan sjó.

Landsliðskonan Rakel Dögg Bragadóttir var skæð hjá Störnunni og skoraði hún níu mörk. Stefanía Theodórsdóttir bætti svo við fimm. 

Hin öfluga Diana Satkauskaite skoraði níu mörk fyrir Val og Íris Ásta Pétursdóttir Viborg gerði fimm. 

Markaskorarar Stjörnunnar: Rakel Dögg Bragadóttir 9, Stefanía Theodórsdóttir 5, Helena Rut Örvarsdóttir 4, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 2, Sólveig Lára Kjærnested 2, Nataly Sæunn Valencia 1.

Markaskorarar Vals: Diana Satkauskaite 9, Íris Ásta Pétursdóttir Viborg 5, Gerður Arinbjarnar 2, Kristine Håheim Vike 2, Kristín Guðmundsóttir 2, Morgan Marie Þorkelsdóttir 1, Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert