Tólf marka sigur á Svartfellingum

Handbolti.
Handbolti. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Íslenska landsliðið í handknattleik drengja, skipað leikmönnum 17 ára og yngri, vann landslið Svartfellinga í sama aldursflokki, 29:17, í fyrsta leik sínum á Miðjarðarhafsmótinu sem fram fer í París. 

Á mótinu er leikið 3x15 mínútur og þá er stigagjöf fyrir hvern leik nokkuð frábrugðin því sem almennt er. 

Það var lítið um varnir framan af fyrsta þriðjungi í dag og eftir 8 mínútur höfðu Svartfellingar forystu, 6:4. Þá kom góður kafli hjá íslensku strákunum sem tryggði þeim góðan sigur í fyrsta þriðjungi, 10:8.

Íslensku strákarnir bættu í forskotið á næstu 15 mínútum, staðan 19:13 eftir 30 mínútur. Munurinn hélt áfram að aukast seinustu 15 mínúturnar, lokatölur 29:17.

Þetta þýðir að íslenska liðið hefur fimm stig að loknum fyrsta leik á mótinu, en eitt stig er gefið fyrir sigur í hverjum þriðjungi leiksins, auk þess eru tvö stig fyrir sigur í leiknum.

Mörk Íslands:  Arnór Snær Óskarsson 6, Dagur Gautason 5, Jónatan Marteinn Jónsson 3, Tumi Steinn Rúnarsson 3, Dagur Kristjánsson 2, Eiríkur Þórarinsson 2, Goði Ingvar Sveinsson 2, Tjörvi Týr Gíslason 2, Daníel Freyr Rúnarsson 1, Arnar Máni Rúnarsson 1, Ólafur Haukur Júlíusson 1, Viktor Jónsson 1.

Björgvin Franz Björgvinsson varði 9 skot og Viktor Gísli Hallgrímsson varði 1 skot.

Á morgun leikur íslenska liðið við Þjóðverja klukkan átta árdegis og við Ítali klukkan 13.45. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert