Birna Berg Haraldsdóttir skoraði fimm mörk fyrir norska handknattleiksliðið Glassverket sem gerði 25:25 jafntefli við danska liðið Nykøbing í EHF bikarnum í handbolta í dag.
Hún var næstmarkahæst síns liðs á eftir Martine Wolff sem skoraði sex mörk.
Þetta var fyrsta stig Glassverket í keppninni á tímabilinu en þær hafa leikið þrjá leiki og að sama skapi var þetta fyrsta tapaða stigið hjá Nykøbing.