Mikilvægur sigur Kristianstad

Ólafur Guðmundsson átti fínan leik gegn Malmö.
Ólafur Guðmundsson átti fínan leik gegn Malmö. AFP

Íslendingaliðin Kristianstad og Malmö mættust í sænsku deildinni í handbolta í dag og hafði Kristianstad betur, 23:20.

Ólafur Guðmundsson lét mest að sér kveða af þeim fjórum Íslendingum sem tóku þátt í leiknum og skoraði hann fimm mörk fyrir Kristianstad. Gunnar Steinn Jónsson bætti við tveim mörkum og Arnar Freyr Arnarson skoraði eitt mark. Leó Snær Pétursson komst ekki á blað hjá Malmö.

Kristianstad fór upp fyrir Malmö með sigrinum og upp 2. sæti með 33 stig, einu stigi á eftir toppliði Alingsås. Malmö er í fjórða sæti, tveim stigum á eftir Kristianstad. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert