Oddur skoraði fjögur gegn toppliðinu

Oddur Gretarsson skoraði fjögur mörk í dag.
Oddur Gretarsson skoraði fjögur mörk í dag. markus@hauschild.biz

Oddur Gretarsson skoraði fjögur mörk fyrri Emsdetten sem tapaði gegn toppliði N-Lübbecke í þýsku B-deildinni í handknattleik í kvöld, 35:28

N-Lübbecke fór upp í 35 stig með sigrinum og er liðið á góðri leið með að vinna sér inn sæti í deild þeirra bestu að ári, eftir fall á síðustu leiktíð. 

Oddur og félagar eru í 12. sæti með 18 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert