Úlnliður Söru vekur athygli

Frá leik Fjölnis á síðustu leiktíð.
Frá leik Fjölnis á síðustu leiktíð. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Sara Djögg Hjaltadóttir, 17 ára handknattleiksstúlka úr Fjölni, hefur vakið athygli fyrir hæfileika sína. Ein stærsta handboltasíða heims, handball-planet.com birti myndband sem Sara setti á samfélagsmiðla en þar sést hún sýna listir sínar.

Leikstjórnandinn er greinilega einstaklega fær í að skrúfa boltanum eins og sést í meðfylgjandi myndskeiði, sem vakið hefur verðskuldaða athygli. 

Myndskeiðið skemmtilega má sjá hér að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert