Diana skoraði 14 mörk

Diana Satkauskaite átti ótrúlegan leik fyrir Val.
Diana Satkauskaite átti ótrúlegan leik fyrir Val. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Diana Satkauskaite gerði sér lítið fyrir og skoraði 14 mörk fyrir Val í 31:26 sigri á Fylki í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. 

Fylkir var 17:15 yfir í hálfleik en Valur var mun betra liðið í seinni hálfleiknum og vann að lokum fimm marka sigur. 

Valur komst í 9:5 en Fylkir kláraði seinni hálfleikinn af krafti og var Thea Imani Sturludóttir að spila sérstaklega vel. Varnarleikurinn batnaði til muna hjá Val í seinni hálfleik og sigldi það að lokum tveimur stigum í hús. 

Markaskorarar Vals: Diana Satkauskaite 14, Morgan Marie Þokellsdóttir 8, Gerður Arinbjarnar 4, Kristine Vike 3, Eva Björk Hlöðversdóttir 1, Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 1

Markaskorarar Fylkis: Thea Imani Sturludóttir 7, Christine Rishaug 6, Þuríður Guðjónsdóttir 4, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 3, Kristjana Björk Steinarsdóttir 3, Vera Pálsdóttir 1, Diljá Mjöll Aronsdóttir 1, Þórunn Friðriksdóttir 1

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert