Frönsku meistararnir í Paris SG báru sigurorð af þýska liðinu Flensburg í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu um síðustu helgi þar sem sigurmarkið var skorað á lokasekúndunni.
Franski landsliðsmaðuriinn Nedim Remili skoraði sigurmarkið eftir sendingu frá Uwe Gensheimer. Á meðfylgjandi myndskeiði kemur í ljós að þetta mark átti aldrei að standa því Remili steig greinilega inn fyrir vítateigslínuna áður en hann tók boltann á lofti og skoraði markið.