Róbert í eins leiks bann

Róbert Sigurðsson í leik með Akureyri gegn Stjörnunni.
Róbert Sigurðsson í leik með Akureyri gegn Stjörnunni. Árni Sæberg

Róbert Sigurðsson leikmaður Akureyrar var í dag úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ.

Róbert fékk útilokun án skýrslu í leik Gróttu og Akureyrar um síðustu helgi. Um var að ræða þriðju útilokun hans án skýrslu á keppnistímabilinu. Í samræmi við 11. gr. reglugerðar um agamál er leikmaðurinn úrskurðaður í eins leiks bann.

Róbert tekur leikbannið út gegn Aftureldingu í næstu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert