„Vörnin svínvirkaði“

Hafdís Shizuka Iura kom fersk inn á af varamannabekknum hjá Fram og skoraði fjögur mörk á lokakaflanum þegar Fram tryggði sér sæti í úrslitum Coca Cola-bikarsins í handbolta með sigri á Haukum 28:21 í kvöld. 

„Ég ákvað bara að gera mitt besta og koma pressulaus inn í þetta. Kannski skiptir það máli,“ sagði Hafdís hógvær þegar mbl.is spurði hana út í hennar frammistöðu í kvöld en Hafdís fagnaði 23 ára afmæli sínu í dag. 

„Við héldum út allan leikinn á meðan það byrjaði að hægja aðeins á þeim á síðustu tíu til fimmtán mínútunum,“ sagði Hafdís meðal annars um leikinn en viðtalið við hana í heild sinni er að finna í meðfylgjandi myndskeiði. 

Hafdís Shizuka Iura skoraði 4 mörk fyrir Fram.
Hafdís Shizuka Iura skoraði 4 mörk fyrir Fram. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert