Viggó hetjan og markahæstur

Viggó Kristjánsson í leik með Gróttu.
Viggó Kristjánsson í leik með Gróttu. mbl.is/Golli

Viggó Kristjánsson var heldur betur í sviðsljósinu þegar Randers og Tønder gerðu dramatískt jafntefli, 21:21, í botnslag í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Viggó og félagar í Randers voru á útivelli og voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 13:11. Síðari hálfleikur var jafn og spennandi og þegar ein mínúta var eftir var Randers marki undir. 12 sekúndum fyrir leikslok jafnaði Viggó hins vegar metin úr vítakasti og tryggði Randers stig, lokatölur 21:21.

Viggó var markahæstur á vellinum í kvöld, en hann skoraði níu mörk fyrir Randers. Arnór Stefánsson ver mark liðsins, sem er enn í botnsætinu með 9 stig en Tønder er sæti ofar með 10.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert