Bjarki Már stóð fyrir sínu

Bjarki Már Elísson.
Bjarki Már Elísson. AFP

Bjarki Már Elísson stóð fyrir sínu í kvöld þegar Füchse Berlín vann heimasigur á Wetzlar, 27:24, í þýsku 1. deildinni í handknattleik.

Bjarki Már skoraði fimm mörk fyrir Füchse, sem var einu marki undir í hálfleik 13:12 en náði að snúa blaðinu við eftir hlé.

Füchse er í fjórða sæti deildarinnar með 37 stig eftir 24 leiki, en Rhein-Neckar Löwen er með jafnmörg stig í sæti ofar en á þrjá leiki til góða. Kiel er í öðru sæti með 38 stig eftir 23 leiki og Flensburg er á toppnum með 41 stig eftir 22 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert