Arnór Ásgeirsson tekur við þjálfun meistaraflokksliðs Fjölnis í handknattleik kvenna eftir yfirstandandi keppnistímabil. Hann mun taka við starfi framkvæmdastjóra handknattleiksdeildar Fjölnis.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjölni. Arnór tekur við þjálfun kvennaliðsins af Andrési Gunnlaugssyni. Fjölnir er um þessar mundir í öðru sæti 1. deildar kvenna og tekur væntanlega þátt umspilsleikjum um sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Arnór er uppalinn Fjölnismaður, segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild Fjölnis. Fyrst sem leikmaður og síðar þjálfari. Hann hefur þjálfað alla aldursflokka kvenna auk yngstu flokka drengja.
Að loknu námi í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík lá leið Arnórs í framhaldsnám í Noregs. Eftir tveggja ára framhaldsnám í Sport Management (íþróttastjórnun) í Molde þar sem hann meðal annars var aðstoðarþjálfari Einars Jónssonar hjá kvennaliði félagsins í 1. deild, aðalþjálfari karlaliðsins í 2. deild og þjálfari U16 strákaliðs fékk hann stöðu íþróttastjóra hjá Fjellhammer. Því starfi hefur hann sinnt síðastliðið ár ásamt því að þjálfa U16 kvenna lið félagsins.