Guðjón Valur með stórleik í sigri

Guðjón Valur Sigurðsson lék á als oddi fyrir Rhein-Neckar Löwen …
Guðjón Valur Sigurðsson lék á als oddi fyrir Rhein-Neckar Löwen í dag. AFP

Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum þegar Rhein-Neckar Löwen lagði Lemgo á útivelli, 33:28, í þýsku efstu deildinni í handbolta karla í dag. Guðjón Valur gerði sér lítið fyrir og skoraði 11 mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen, en hann var markahæsti leikmaður liðsins í leiknum í dag. 

Guðjón Valur gerði sér lítið fyrir og skoraði 11 mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen, en hann var markahæsti leikmaður liðsins í leiknum í dag. Alexander Petersson skoraði eitt mark fyrir Rhein-Neckar Löwen.

Rhein-Neckar Löwen komst upp í annað sæti deildarinnar með þessum sigri, en liðið er þremur stigum á eftir Flensburg sem trónir á toppi deildarinnar. Rhein-Neckar Löwen á leik til góða á Flensburg.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert