Aron markahæstur í Meistaradeildinni

Aron Pálmarsson í leik með Veszprém.
Aron Pálmarsson í leik með Veszprém. Ljósmynd/Melczer Zsolt

Aron Pálmarsson og félagar í ungverska liðinu Veszprém eru í góðri stöðu eftir sigur á franska liðinu Montpellier, 26:23, í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik.

Aron var markahæstur hjá Veszprém ásamt Laslo Nagy með 6 mörk, en Aron og félagar voru einnig þremur mörkum yfir í hálfleik 13:10.

Síðari leikur liðanna fer fram í Frakklandi sunnudaginn 30. apríl næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert