Haukar framlengja við lykilmenn

Grétar Ari Guðjónsson, Heimir Óli Heimisson, Tjörvi Þorgeirsson, Jón Þorbjörn …
Grétar Ari Guðjónsson, Heimir Óli Heimisson, Tjörvi Þorgeirsson, Jón Þorbjörn Jóhannsson og Andri Scheving. Ljósmynd/Haukar

Haukar hafa samið við lykilmenn um að leika áfram með liðinu á næsta tímabili, en leikstjórnandinn Tjörvi Þorgeirsson og línumennirnir Jón Þorbjörn Jóhannsson og Heimir Óli Heimisson hafa allir skrifað undir nýja samninga.

Að auki hafa Haukar samið við markverðina efnilegu Grétar Ara Guðjónsson og Andra Scheving, en þeir munu standa í ströngu með yngri landsliðum Íslands í sumar.

Haukar höfnuðu í 2. sæti Olís-deildarinnar í vetur og duttu svo úr leik í átta liða úrslitaeinvígi sínu við Fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert