Bjarki Már og félagar í undanúrslit

Bjarki Már Elísson leikur með Füchse Berlín.
Bjarki Már Elísson leikur með Füchse Berlín. AFP

Bjarki Már Elísson og félagar hans í þýska hand­knatt­leiksliðinu Füch­se Berlín eru komnir í undanúrslit EHF-bik­ars­ins eftir 28:22-sigur gegn Tata­banya frá Ung­verjalandi í seinni viður­eign liðanna í 8-liða úrslitum í dag.

Berlínarliðið vann fyrri leikinn á útivelli, 30:25, og var því í afar góðri stöðu fyrir seinni leikinn sem fór fram í þýsku höfuðborginni. Bjarki skoraði fjögur mörk í dag.

Füchse vann því einvígið með 11 marka mun samanlagt, 58:47, en það mætir annaðhvort Saint Raphael frá Frakklandi eða Melsungen frá Þýskalandi í undanúrslitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert