Stephen í landsliðshópinn

Stephen Nielsen, markvörður ÍBV.
Stephen Nielsen, markvörður ÍBV. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Stephen Nielsen, markvörður ÍBV, hefur verið kallaður inn í landsliðshóp Íslands í handknattleik fyrir leikina tvo gegn Makedóníu í undankeppni Evrópumóts karla sem fram fara á fimmtudag og sunnudag.

Geir Sveinsson landsliðsþjálfari bætti honum í hópinn þar sem Aron Rafn Eðvarðsson er tæpur vegna meiðsla og óvíst er hvort hann geti tekið þátt í leikjunum tveimur.

Stephen hefur leikið einn A-landsleik fyrir Íslands hönd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert