Arnór með sjö í mikilvægum sigri

Arnór Þór Gunnarsson var öflugur í dag.
Arnór Þór Gunnarsson var öflugur í dag. AFP

Landsliðsmaðurinn Arnór Þór Gunnarsson átti stórleik og skoraði sjö mörk fyrir Bergischer í gríðarlega mikilvægum sigri á Gummersbach, 26:21, í botnbaráttunni í efstu deild þýska handboltans.

Arnór Þór skoraði sjö mörk úr níu skotum, fimm af vítalínunni, í leiknum en með sigrinum fór Bergischer í 20 stig, upp í 13. sætið en liðið er núna þremur stigum frá fallsæti.

Björgvin Páll varði 12 skot í leiknum og eitt víti.

Þá töpuðu lærisveinar Rúnars Sigtryggssonar í Balingen á heimavelli, 36:29. Liðið hefur 17 stig í 17. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert