Norski markmaðurinn Lina Mekvik Rypdal hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild Vals. Hún kemur til félagsins frá Molde í heimalandinu, en hún hefur leikið í Noregi allan sinn feril.
Rypdal er 29 ára og hefur hún verið að æfa með Val undanfarna viku og heillaði hún greinilega Valsmenn sem ákváðu að bjóða henni samning.