Helena á leið til Noregs?

Helena Rut Örvarsdótir er orðuð við atvinnumennsku.
Helena Rut Örvarsdótir er orðuð við atvinnumennsku. mbl.is/Kristinn Magnússon

Helena Rut Örvarsdóttir, leikmaður deildar- og bikarmeistara Stjörnunnar í handknattleik, er undir smásjá norska úrvalsdeildarliðsins Byåsen samkvæmt því sem norski miðillinn Adressa greinir frá.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er ekkert frágengið um félagaskipti Helenu, en forráðamenn Byåsen eru sagðir sjá hana sem ákjósanlegan kost til þess að fylla skarð Idu Alstad sem er ófrísk. Byåsen hafnaði í fjórða sæti norsku deildarinnar í vetur.

Helena Rut er 23 ára gömul og var markahæsti leikmaður Stjörnunnar síðastliðinn vetur. Hún skoraði þá 112 mörk í deildinni og bætti við öðrum 59 í úrslitakeppninni þar sem Stjarnan tapaði að lokum fyrir Fram í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. yrkill@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert