Arna Þyrí framlengir við Fram

Arna Þyrí Ólafsdóttir.
Arna Þyrí Ólafsdóttir. Ljósmynd/Fram

Handknattleiksdeild Fram og Arna Þyrí Ólafsdóttir hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Fram og verður áfram í herbúðum liðsins næstu tvö árin.

Arna Þyrí leikur í stöðu leikstjórnanda eða skyttu og kom til Fram veturinn 2015-2016 frá ÍBV þar sem hún hafði leikið upp allra yngri flokka.

Arna Þyri hefur leikið um 50 leiki með Fram á þessum tveimur keppnistímabilum og fagnaði Íslandsmeistaratitli með liðinu í vor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert