Sölvi í Selfoss á ný

Sölvi Ólafsson
Sölvi Ólafsson Ljósmynd/Selfoss

Markmaðurinn Sölvi Ólafsson hefur gert eins árs samning við handknattleiksdeild Selfoss. Hann er 22 ára gamall og uppalinn Selfyssingur, undanfarið hefur hann þó spilað fyrir Aftureldingu. Sölvi er gríðarsterkur markmaður og hefur verið viðloðandi yngri landslið Íslands.

Handknattleiksdeild Selfoss fagnar því að Sölvi skuli hafa ákveðið að snúa aftur í heimahagana. Hann á án efa eftir að standa sig vel innan herbúða Selfoss og óskar handknattleiksdeildin honum góðs gengis sem og liðinu öllu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert