Sandra í hópinn í stað Theu Imani

Axel Stefánsson.
Axel Stefánsson. mbl.is/Golli

Axel Stefánsson, þjálfari A-landsliðs kvenna í handknattleik, hefur valið 17 leikmenn til að taka þátt í æfingum og leikjum í Reykjavik og Kaupmannahöfn 24. - 30. júlí. 

Sandra Erlingsdóttir úr ÍBV kemur inn í hópinn fyrir Theu Imani Sturludóttir sem hefur átt við meiðsli að stríða.

Liðið mun æfa fyrstu þrjá dagana í Reykjavík en ferðast svo til Kaupmannahafnar þar sem spilað verður við danska liðið København HB og sænska meistaraliðið H65 Höör. Auk þess verður æft með danska liðinu.

Leikirnir eru liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir undankeppni EM sem hefst í haust með leikjum gegn Danmörku og Tékklandi í lok september.

Landsliðshópurinn:

Andrea Jacobsen, Fjölni
Birna Berg Haraldsdóttir, Århus United
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Haukum
Eva Björk Davíðsdóttir, Sola HK        
Guðrún Ósk Maríasdóttir, Fram
Hafdís Renötudóttir, Stjörnunni      
Helena Rut Örvarsdóttir, Stjörnunni      
Hildigunnur Einarsdóttir, Leipzig
Karen Knútsdóttir, Fram
Lovísa Thompson, Gróttu
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss
Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV
Steinunn Hansdóttir, Skanderborg
Unnur Ómarsdóttir, Gróttu                  
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Gróttu
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert