Selfoss fær markmann frá Bosníu

Anadin Suljaković er orðinn leikmaður Selfoss.
Anadin Suljaković er orðinn leikmaður Selfoss. Ljósmynd/Selfoss

Handknattleiksdeild Selfoss hefur gert samning við hinn 19 ára gamla Anadin Suljaković, markmann frá Bosníu. Hann hefur spilað með liði RK Maglaj í Bosníu og Hersegóvínu, Al Sadd SC í Katar auk þess að hafa spilað með yngri landsliðum Katar frá árinu 2015.

„Handknattleiksdeild Selfoss er afar ánægð með að hafa tryggt sér krafta Anadins fyrir komandi átök í vetur. Handknattleiksdeildin er fullviss um að Anadin eigi eftir að standa sig með prýði fyrir félagið,“ segir í tilkynningu sem Selfoss sendi frá sér í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert