Bergvin Þór í Breiðholtið

Bergvin Þór er góður sóknarmaður.
Bergvin Þór er góður sóknarmaður. Árni Sæberg

Breiðhyltingar sendu út tilkynningu þess efnis að nýr leikmaður hafi bæst í hóp handknattleiksliðs ÍR, Bergvin Þór Gíslason. Bergvin kemur frá Akureyri og er fjölhæfur, rétthentur sóknarmaður og eru ÍR-ingar að styrkja lið sitt fyrir komandi átök, en liðið snýr aftur í Olís-deildina í haust.

Bergvin var valinn efnilegasti leikmaður ársins 2013 á lokahófi HSÍ, en hann hefur glímt við axlarmeiðsli síðustu ár. ÍR hefur fengið Björgvin Hólmgeirsson, Kristján Orra Jóhannsson og Elías Bóasson til liðs við félagið og því ljóst að Breiðhyltingar ætla sér stóra hluti í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert