Góður sigur á Ísrael og leikur um 5. sæti

Íslenska liðið fyrir leikinn í dag.
Íslenska liðið fyrir leikinn í dag. Ljósmynd/Heimasíða mótsins

Íslenska stúlknalandsliðið í handknattleik skipað leikmönnum 17 ára og yngri vann góðan 29:18 sigur á Ísrael í lokaleik liðsins í riðlakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Makedóníu. 

Berta Rut Harðardóttir skoraði sex mörk fyrir íslenska liðið og þær Birta Rún Grétarsdóttir og Lena Margrét Valdimarsdóttir skoruðu fimm mörk hvor. 

ísland hafnaði í þriðja sæti síns riðils og leikur gegn Sviss í leik um fimmta sæti mótsins á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert