Ísland í sjötta sæti á EM

Sara Dögg Hjaltadóttir með sækir að vörn Sviss í dag.
Sara Dögg Hjaltadóttir með sækir að vörn Sviss í dag. Ljósmynd/Heimasíða mótsins

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik skipað leikmönnum 17 ára og yngri, hafnaði í sjötta sæti á EM í Makedóníu. Íslenska liðið tapaði fyrir Sviss í dag, 35:27 í leik um fimmta sætið. 

Berta Rut Harðardóttir var markahæst í íslenska liðinu með fimm mörk og þær Harpa María Friðgeirsdóttir, Birta Rún Grétarsdóttir, Lena Margrét Valdimarsdóttir og Katla María Magnúsdóttir voru allar með þrjú mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert