Dagur sendi Japani í sjóinn

„Í sjóinn með ykkur,“ gæti Dagur Sigurðsson hafa þurft að …
„Í sjóinn með ykkur,“ gæti Dagur Sigurðsson hafa þurft að segja. AFP

Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Japan í handknattleik, er með landsliðið í æfingabúðum hér á Ísandi þessa daga og vikur og þar er ekkert gefið eftir.

Dagur birti mynd á Twitter-síðu sinni í gær þar sem sex landsliðsmenn voru að svamla í sjónum við Íslandsstrendur. Höfðu þeir þá tapað í keppni innan liðsins og refsingin var að skella sér í sjóinn.

Miðað við svipinn á köppunum voru þeir þó hinir hressustu á meðan á svamlinu stóð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert