Arnór með annan stórleik í sigri

Arnór Þór Gunnarsson skoraði sjö í dag.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði sjö í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arnór Þór Gunnarsson skoraði sjö mörk fyrir Bergischer sem lagði Hüttenberg á heimavelli, 26:22 í 2. umferð þýska bikarsins í handbolta í dag. Ragnar Jóhannsson var ekki með Hüttenberg en Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar liðið. 

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel áttu ekki í vandræðum með Dessauer á útivelli. Lokatölur urðu 36:23 Kiel í vil. Fjögur mörk Fannars Friðgeirssonar fyrir Hamm dugðu skammt gegn Leipzig á heimavelli. Leipzig vann leikinn örugglega, 37:24.

Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson voru hvíldir í 41:30 útisigri Rhein-Necker Löwen á Eisenach. Bjarki Már Elísson spilaði ekki fyrir Füchse Berlín sem lagði Nordhorn á útivelli, 34:31 og Oddur Grétarsson var ekki með Emsdetten í 29:23 tapi liðsins gegn Ferdorf á útivelli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert