FH-ingur til Hauka

Halldór Ingi Jónasson, FH. Giedrius Morkunas, markvörður Hauka, til varnar.
Halldór Ingi Jónasson, FH. Giedrius Morkunas, markvörður Hauka, til varnar. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Handknattleikslið Hauka hefur sótt liðsstyrk til erkifjendanna í FH. Halldór Ingi Jónasson er uppalinn FH-ingur og hefur leikið með meistaraflokknum síðustu ár. Vísir greinir frá að kappinn hafi gert tveggja ára samning við félagið með möguleika á eins árs framlengingu.

Haukar misstu tvo örvhenta leikmenn í meiðsli í síðustu viku auk þess sem Ivan Ivkovic var sendur heim vegna atviks utan vallar. Því er hægri vængur liðsins ansi viðkvæmur, en Halldór Ingi mun koma til með að styrkja stöðuna til muna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert