Þýska meistaraliðið Rhein-Neckar Löwen hafði betur gegn pólska liðinu Wisla Plock, 31:27, í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í dag.
Alexander Petersson skoraði eitt mark úr fimm skotum fyrir Löwen en Guðjón Valur Sigurðsson var sem fyrr á þessu tímabili ekki með liðinu vegna meiðsla. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæmdu leikinn.
Rhein-Neckar Löwen er með 3 stig eftir tvo leiki en Wizla Plock hefur tapað báðum leikjum sínum.