Birna Berg var markahæst

Birna Berg Haraldsdóttir.
Birna Berg Haraldsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðskonan Birna Berg Haraldsdóttir var markahæst í liði Aarhus United þegar liðið tapaði fyrir Randers, 24:21, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Birna Berg skoraði fimm mörk fyrir Árósarliðið sem hefur aðeins eitt stig eftir fjóra leiki í deildinni.

Eva Björk Davíðsdóttir og stöllur hennar í Ajax København biðu lægri hlut fyrir Rinköping, 26:19. Eva Björk komst ekki á blað fyrir Ajax en liðið er án stiga í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert