Hafnarfjarðaslagur í kvöld

Einar Rafn Eiðsson býr sig undir að skjóta að marki …
Einar Rafn Eiðsson býr sig undir að skjóta að marki Hauka. mbl.is/Árni Sæberg

Það er sannkallaður stórleikur á dagskrá í 3. umferð Olís-deildar karla í handknattleik í kvöld en Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH eigast við á Ásvöllum.

Haukar og FH hafa byrjað leiktíðina vel en þau hafa bæði unnið tvo fyrstu leiki sína í deildinni og eins og ávallt ríkir mikil spenna í Firðinum fyrir viðureign erkifjendanna. Sigurliðið úr leiknum í kvöld tyllir sér á toppinn með Valsmönnum en Íslandsmeistararnir hafa unnið alla þrjá leiki sína.

Þrír leikir fara fram í Olís-deildinni í kvöld en leikirnir eru:

18.00 Grótta - ÍBV
19.30 Fram - Selfoss
20.00 Haukar - FH

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert