Naumt tap hjá Ólafi og félögum

Ólafur Gústafsson í leik með Stjörnunni.
Ólafur Gústafsson í leik með Stjörnunni. Árni Sæberg

Ólafur Gústafsson skoraði þrjú mörk þegar lið hans, Kolding, laut í lægra haldi, 24:22, gegn GOG í sjöttu umferð dönsku efstu deildarinnar í handbolta karla í dag. Þetta var annar leikur Ólafs fyrir Kolding, en hann gekk til liðs við danska félagið frá Stjörnunni á dögunum.  

Ólafur skoraði þrjú marka Kolding í leiknum, en hann skoraði mörkin þrjú í sjö marktilraunum. Kolding er í tíunda sæti deildarinnar með fimm stig, en átta efstu lið deildarkeppninnar öðlast þátttökurétt í úrslitakeppni deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert