Ragnheiður með 15 mörk í sigri Fram

Perla Ruth Albertsdóttir hefur leikið vel fyrir Selfoss.
Perla Ruth Albertsdóttir hefur leikið vel fyrir Selfoss. mbl.is/Árni Sæberg

Fram vann yfirburðasigur á Selfyssingum í Olís-deild kvenna á Selfossi í kvöld. Lokatölur urðu 23:34.

Leikurinn var jafn fyrstu fimmtán mínúturnar en eftir það tóku Framarar stjórnina undir forystu Ragnheiðar Júlíusdóttir sem var óstöðvandi í leiknum.

Staðan var 13:18 í hálfleik en Framliðið bætti heldur betur í í seinni hálfleiknum og forskotið var fljótlega orðið 10 mörk. Selfyssingar áttu ekkert svar við góðum leik Framara.

Hulda Dís Þrastardóttir var markahæst Selfyssinga eð 6 mörk og Harpa Sólveig Brynjarsdóttir skoraði 4/1. Viviann Petersen varði 8 skot í markinu. Hjá Frömurum var Ragnheiður Júlíusdóttir algjör yfirburðamanneskja með 15/4 mörk. Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði 7. Guðrún Ósk Maríasdóttir varði 11 skot í marki Fram.

Selfoss 23:34 Fram opna loka
60. mín. Ragnheiður Júlíusdóttir (Fram) skoraði mark Fimmtánda markið hennar í kvöld. Óstöðvandi!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert