Geir valdi fjóra nýliða

Gísli Þorgeir Kristjánsson er einn fjögurra nýliða í íslenska landsliðinu.
Gísli Þorgeir Kristjánsson er einn fjögurra nýliða í íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Geir Sveinsson þjálfari karlalandsliðsins í handknattleik hefur valið 20 manna hóp fyrir tvo vináttuleiki gegn Svíum í lok mánaðarins.

Aron Pálmarsson gefur ekki kost á sér af persónulegum ástæðum en eins og fram kom í Morgunblaðinu í dag er hann í samningaviðræðum við Barcelona um að ganga til liðs við félagið frá ungverska liðinu Veszprém.

Fjórir nýliðar eru í hópnum en það eru FH-ingarnir Gísli Þorgeir Kristjánsson og Óðinn Þór Ríkharðsson, Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson og Stjörnumaðurinn Egill Magnússon. Kári Kristjánsson, Arnór Atlason og Aron Pálmarsson detta út úr hópnum frá síðustu leikjum landsliðsins sem voru gegn Tékkum og Úkraínumönnum í undankeppni EM í júní.

Leikirnir við Svía eru liður í undirbúningi landsliðsins fyrir Evrópumótið sem fram fer í Króatíu í janúar en þar eru Íslendingar í riðli með Króötum, Svíum og Serbum og verður riðillinn spilaður í Split.

Hópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:         
Aron Rafn Eðvarðsson, ÍBV
Ágúst Elí Björgvinsson, FH
Björgvin Páll Gústavsson, Haukum
                
Aðrir leikmenn:         
Arnar Freyr Arnarsson, IFK Kristianstad
Arnór Þór Gunnarsson, Bergischer
Atli Ævar Ingólfsson, Selfoss
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes
Bjarki Már Elísson, Füchse Berlin
Bjarki Már Gunnarsson, Stjörnunni
Daníel Þór Ingason, Haukum
Egill Magnússon, Stjörnunni
Elvar Örn Jónsson, Selfoss
Gísli Þorgeir Kristjánsson, FH
Guðjón Valur Sigurðsson, Rhein-Neckar Löwen
Janus Daði Smárason, Ålborg Håndbold
Óðinn Þór Ríkharðsson, FH
Ólafur Guðmundsson, IFK Kristianstad
Ómar Ingi Magnússon, Århus Håndbold
Rúnar Kárason, TSV Hannover/Burgdorf
Ýmir Örn Gíslason, Val

Leikirnir fara fram fimmtudaginn 26. október kl. 19.30 og laugardaginn 28. október kl. 14.00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert