Ef glufa í markinu læt ég bara vaða

Daníel Þór Ingason
Daníel Þór Ingason mbl.is/Árni Sæberg

„Ég náði einhvern veginn að koma mér í færi og ef maður sér glufu í markinu lét ég  bara vaða,“  sagði Daníel Þór Ingason, sem skoraði 11 mörk fyrir Hauka í 25:32 sigri á Aftureldingu í Mosfellsbænum í kvöld þegar leikið var í efstu deild karla í handbolta, Olís-deildinni.

„Mér þessi leikur upp og niður en skemmtilegur samt.  Við stóðum ekki vörnina eins og við ætluðum að gera svo Afturelding komst yfir en við náðum að berja okkur saman og þá kom þetta.  Við erum nú jafnir FH að stigum en deildin er tæknilega séð nýbyrjuð.  Hún er samt sterk og ljóst að allir geta unnið alla en svona er staðan.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert