Valur fór illa með Fjölni

Díana Dögg Magnúsdóttir átti góðan leik fyrir Val.
Díana Dögg Magnúsdóttir átti góðan leik fyrir Val. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Valskonur fóru illa með nýliða Fjölnis er liðin mættust í 6. umferð Olís-deildar kvenna í handbolta á Hlíðarenda í kvöld. Leikurinn var aldrei spennandi og lauk honum með 36:14-sigri Vals. 

Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir átti stórleik hjá Val og skoraði níu mörk, Díana Dögg Magnúsdóttir og Kristín Guðmundsdóttir gerðu fimm og þær Kristín Arndís Ólafsdóttir og Diana Satkauskaite skoruðu fjögur. Ólöf Ásta Arnþórsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Fjölni og þær Elísa Ósk Viðarsdóttir og Andrea Jacobsen skoruðu þrjú. 

Valskonur fóru upp í níu stig og í toppsæti deildarinnar með sigrinum en Fjölnir er með eitt stig og við botninn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert