Fram vann öruggan sigur gegn Víkingi, 32:24, þegar liðin áttust við í Olís-deild karla í Víkinni í kvöld.
Framarar höfðu tögl og hagldir allan tímann en staðan eftir fyrri hálfleikinn var 16:8, Frömurum í vil.
Matthías Daðason og Sigurður Örn Þorsteinsson voru markahæstir í liði Fram með 5 mörk hvor og þeir Andri Þór Helgason og Arnar Birkir Hálfdánsson voru með 4 mörk. Hjá Víkingum var Jón Hjálmarsson í sérflokki en hann skoraði 11 mörk og næstur kom Víglundur Jarl Þórsson með 4.