Akureyringar enn á sigurbraut

Martha Hermannsdóttir skoraði 8 mörk fyrir KA/Þór
Martha Hermannsdóttir skoraði 8 mörk fyrir KA/Þór mbl.is/Þórir Tryggvason

KA/Þór hélt í gær áfram sigurgöngu sinni í 1. deild kvenna í handknattleik, Grill 66-deildinni, með því að vinna öruggan sigur á Víkingi, 37:24, í Víkinni.

Akureyrarliðið hefur þar með unnið alla sex leiki sína og er með 12 stig. Hulda Bryndís Tryggvadóttir skoraði 8 mörk fyrir KA/Þór og Martha Hermannsdóttir 6 en Alina Molkova skoraði 10 mörk fyrir Víking og hefur skorað 60 mörk í fyrstu sex leikjum liðsins.

HK er líka taplaust en gerði jafntefli, 19:19, við FH í Kaplakrika og er með 12 stig eins og KA/Þór en hefur leikið einum leik meira. Valgerður Þorsteinsdóttir skoraði 6 mörk fyrir HK og Embla Jónsdóttir gerði 6 mörk fyrir FH.

ÍR vann Fylki, 28:23, í Seljaskóla. Karen Tinna Demian skoraði 8 mörk fyrir ÍR og Elín Rósa Magnúsdóttir 8 fyrir Fylki.

FH er með 8 stig í þriðja sæti deildarinnar og ÍR er komið í 4. sætið með 6 stig. Víkingur og Afturelding eru með 5 stig hvort, Fylkir 4, Fram U er með 2 stig og Valur U er án stiga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert