Bjarki Már og félagar komnir áfram

Bjarki Már Elísson.
Bjarki Már Elísson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarki Már Elísson og samherjar hans í Füchse Berlin eru komnir áfram í riðlakeppni EHF-keppninnar í handknattleik eftir öruggan sigur gegn Porto, 33:25, í síðari viðureign liðanna í 32-liða úrslitunum.

Füchse Berlin vann einnig fyrri leikinn í Portúgal, 30:27. Füchse Berlin hafði undirtökin allan tímann í kvöld en staðan eftir fyrri hálfleikinn var 17:12.

Bjarki Már skoraði tvö af mörkum Berlínarliðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert