Löwen og Kiel töpuðu

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk fyrir Löwen.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sjö mörk fyrir Löwen. Ljósmynd/Heimasíða Rhein-Neckar Löwen

Íslendingaliðið Rhein-Neckar Löwen mátti sætta sig við tap, 28:26, gegn Göppingen í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.

Þetta var níundi útileikur Löwen í röð í öllum keppnum. Leikurinn var jafn og spennandi og í hálfleik var staðan jöfn, 14:14.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 7 mörk fyrir Löwen og Alexander Petersson 4.

Rúnar Kárason og samherjar hans í Hannover-Burgdorf unnu góðan útisigur gegn Lemgo, 29:27. Rúnar skoraði 2 af mörkum Burgdorf í leiknum.

Alfreð Gíslason fór með lærisveina sína í Kiel á gamla heimavöllinn í Gummersbach og hann sá sína menn tapa, 31:27.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert