Gott gengi Hauka heldur áfram

Guðrún Erla Bjarnadóttir átti góðan leik í kvöld.
Guðrún Erla Bjarnadóttir átti góðan leik í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haukar léku í kvöld sinn áttunda leik í röð í Olísdeild kvenna í handbolta án þess að tapa er Fjölnir kom í heimsókn á Ásvelli. Haukar voru yfir allan leikinn og höfðu betur, 28:22. Staðan í hálfleik var 16:7, Haukum í vil. 

Guðrún Erla Bjarnadóttir skoraði fimm mörk fyrir Hauka og þær Maria Ines, Berta Rut Harðardóttir og Vilborg Pétursdóttir skoruðu fjögur mörk hver. Landsliðskonan Andrea Jacobsen skoraði mest fyrir Fjölni eða sjö mörk. 

Haukar eru í öðru sæti deildarinnar með 17 stig, einu minna en topplið Vals. Fjölnir er í sjöunda sæti með fjögur stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert