Grótta marði Akureyri í bikarnum

Daði Laxdal Gautason finnur leið framhjá vörn Akureyrar í kvöld.
Daði Laxdal Gautason finnur leið framhjá vörn Akureyrar í kvöld. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Olísdeildarlið Gróttu þurfti svo sannarlega að hafa fyrir hlutunum gegn 1. deildarliði Akureyrar í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikars karla í handbolta í dag. Eftir spennandi leik hafði Grótta betur með minnsta mun, 29:28. 

Staðan í hálfleik var 14:12, Gróttu í vil. Júlíus Stefánsson skoraði sex mörk fyrir Gróttu og þeir Daði Laxdal Gautason og Maximilian Jonsson gerði fjögur. Brynjar Grétarsson átti stórleik fyrir Akureyri og skoraði níu mörk og Patrekur Stefánsson skoraði átta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert