Sannfærandi hjá toppliðinu

Diana Satkauskaité átti stórleik í kvöld.
Diana Satkauskaité átti stórleik í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Toppliði Vals urðu á engin mistök er Stjarnan kom í heimsókn í Valshöllina í Olísdeild kvenna í handbolta í kvöld. Valur hafði betur, 33:25, en staðan í hálfleik var 18:14. 

Diana Satkauskaite átti enn og aftur stórleik hjá Val og skoraði 11 mörk. Þar á eftir komu þær Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir, Gerður Arinbjarnar og Morgan Marie Þorkelsdóttir með fjögur mörk hver. Ramune Pekarskyte og Þórhildur Gunnarsdóttir skoruðu sjö mörk hvor fyrir Stjörnuna. 

Valur er nú með 20, þremur meira en Haukar sem eru í 2. sæti en Stjarnan er í 5. sæti með níu stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert