Haukar eru komnir áfram í 8-liða úrslit Coca-Cola-bikars karla í handbolta eftir 25:23-sigur á ÍR á Ásvöllum í kvöld. ÍR-ingar komust í 3:1 en þá komu fimm mörk Hauka í röð og staðan 6:3 fyrir heimamenn.
Eftir það náði ÍR ekki að jafna metin, þrátt fyrir fínar tilraunir til þess. ÍR náði tvívegis að minnka muninn í eitt mark, fyrst í stöðunni 20:19 og svo í 24:23 í blálokin. Hákon Daði Styrmisson skoraði hins vegar 25. mark Hauka og tryggði þeim 25:23-sigur.
Adam Haukur Bamruk og Hákon Daði Styrmisson skoruðu fimm mörk hvor fyrir Hauka, eins og Daníel Ingi Guðmundsson og Þrándur Gíslason fyrir ÍR. Markmennirnir áttu einnig góðan leik; Björgvin Páll Gústavsson varði 19 skot fyrir Hauka og Grétar Ari Guðjónsson 18 fyrir ÍR.
Haukar | 25:23 | ÍR | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Haukar tekur leikhlé 20 sekúndur eftir og Haukar taka leikhlé. Ef allt er eðilegt ná þeir að halda þetta út og tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |