Hópurinn fyrir EM klár - Ágúst í markinu

Ágúst Elí Björgvinsson fer með til Króatíu.
Ágúst Elí Björgvinsson fer með til Króatíu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Geir Sveinsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur valið þá 16 leikmenn sem mæta til leiks á EM í Króatíu í janúar. Auk þeirra verða þrír leikmenn í æfingahópi með A-liðinu í desember. Ágúst Elí Björgvinsson, markmaður FH, og Ýmir Örn Gíslason, leikmaður Vals, fá því tækifæri á sínu fyrsta stórmóti. 

Íslenska liðið má sjá hér:

Markverðir:
Ágúst Elí Björgvinsson, FH
Björgvin Páll Gústavsson, Haukum

Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson, Füchse Berlin
Guðjón Valur Sigurðsson, Rhein Neckar Löwen

Hægra horn:
Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club

Vinstriskyttur:
Aron Pálmarsson, FC Barcelona Lassa
Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad

Hægriskyttur:
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Nimes
Ómar Ingi Magnússon, Aarhus Håndbold    
Rúnar Kárason, TSV Hannover/Burgdorf

Leikstjórnendur:
Arnór Atlason, Aalborg Håndbold
Janus Daði Smárason, Aalborg Håndbold

Línumenn:
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV
Arnar Freyr Arnarsson, IFK Kristianstad

Varnarmenn:
Bjarki Már Gunnarsson, Stjörnunni
Ýmir Örn Gíslason, Val

Einnig í æfingahópi:

Óðinn Þór Ríkharðsson, FH
Elvar Örn Jónsson, Selfossi
Daníel Þór Ingason, Haukum

Æfingar íslenska liðsins hefjast 28. desember. Strax eftir áramótin mætir Dagur Sigurðsson með sína sveit alla leið frá Japan.

Liðin munu leiða saman hesta sína í vináttulandsleik í Laugardalshöll hinn 3. janúar.

Þá heldur íslenska liðið til Þýskalands þar sem leiknir verða tveir leikir gegn heimamönnum áður en leið liggur til Króatíu.

Leikir strákanna okkar á EM í Króatíu:

Svíþjóð – Ísland, föstudaginn 12. janúar kl. 17.15.

Ísland – Króatía, sunnudaginn 14. janúar kl. 19.30.

Serbía – Ísland, þriðjudaginn 16. janúar kl. 17.15

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert