Oftedal valin sú besta á HM

Stine Bredal Oftedal.
Stine Bredal Oftedal. AFP

Fyrir úrslitaleikinn á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik í gær var valið úrvalslið mótsins og besti leikmaðurinn.

Stine Oftedal frá Noregi var valin besti leikmaðurinn en úrvalsliðið er þannig skipað:

Vinstra horn: Siraba Dembele, Frakklandi.

Skytta vinstra megin: Lois Abbingh, Hollandi

Leikstjórnandi: Grace Zaadi, Frakklandi

Hægra horn: Nathalie Hagman, Svíþjóð

Skytta hægra megin: Nora Mørk, Noregi

Línumaður: Yvette Broch, Hollandi

Markvörður: Katrine Lund, Noregi.

Nora Mørk, örvhenta skyttan í liði Noregs, varð markahæsti leikmaður mótsins en hún skoraði 66 mörk. Lois Abbingh frá Hollandi kom næst með 58 og Iveta Luzumova frá Tékklandi var þriðja með 47 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert