Líflegt mótahald víða um land í veðurblíðu um helgina

Hestamannafélagið þjálfi í Þingeyjarsýslu blés hraustlega til leiks á Mývatni á laugardag þar sem boðið var sérstaklega nokkrum útvöldum snillingum til leiks auk þess sem minni spámenn spreyttu sig og fáka sína á vatninu. Það verður að telja þetta uppátæki nokkuð djarft hjá þeim Þjálfafélögum en vissulega höfðu þeir vaðið fyrir neðan sig með stuðningi sterkra aðila eins og Flugleiða. Þetta mótahald mun vera viðleitni í þá átt að markaðssetja Ísland að vetrarlagi sem girnilegan kost til ferðalaga. Mótið tókst í alla staði vel. Þrátt fyrir hlýindi undanfarið var góður ís á vatninu og veðrið lék við alla viðstadda. Skráningar voru ríflega sjötíu talsins og til leiks mætti mikill fjöldi mjög góðra hrossa og keppnin því vel í þeim gæðaflokki sem þarf að vera þegar svo mikið er lagt undir. Keppt var í tölti og skeiði. Ekki þó farið eftir stífustu reglum í töltinu heldur lögð áhersla á að allt gengi fljótt vel fyrir sig.

Enn á ný kvaddi hin kynngimagnaða hryssa Hrauna frá Húsavík sér eftirminnilega hljóðs en hún vakti verskuldaða athygli þegar Þórður Þorgeirsson sýndi hana í kynbótadómi á síðasta ári. Þórður var einnig knapi nú og var frammistaða þeirra á ísnum hreint frábær. Þau sigruðu í opnum flokki í tölti en næstur kom Hafliði Halldórsson með HM-kandídat sinn Ásdísi frá Lækjarbotnum. Í flokki áhugamanna sigraði nokkuð örugglega Vignir Sigurólason á Sigri frá Húsavík sem er aðeins fimm vetra gamall hestur en strax farinn að láta verulega að sér kveða. Þar er á ferðinni mjög hágengur hestur sem virðist enn sem komið er bera nafn með rentu og þarf áreiðanlega mikla framsýni, já og áræði til að nefna hesta slíku nafni.

Það mætti ætla samkvæmt þessu að hrossarækt þeirra Þingeyinga og ekki síst Húsvíkinga sé að skila afar athyglisverðum hrossum þótt ekki sé hún mikil að vöxtum.

Þórður sigraði einnig í skeiðinu sem var hundrað metrar með fljúgandi starti á hryssunni Ýr frá Jarðbrú og hlaut hann því tvo farmiða á Evrópuleiðum Flugleiða í verðlaun en Vignir hirti þann þriðja. Þá gaf Selhótel á Mývatni gistingu í verðlaun en auk þess voru veitt ýmis önnur aukaverðlaun.

Gustur í Kópavogi hélt sína aðra vetrarleika á laugardag og tókust þeir mun betur en hraðmótið sem félagið hélt í síðasta mánuði í vitlausu veðri eða því sem næst. Ættartengsl voru mikil meðal verðlaunahafa á mótinu án þess þó að verið sé að ýja að hlutdrægni ágæts dómara Guðmars Þór Péturssonar. Þessi niðurstaða sýnir kannski betur en margt hversu mikil fjölskylduíþrótt hestamennskan er í dag. Formaður félagsins, Þóra Ásgeirsdóttir, gerði sér lítið fyrir og sigraði í keppni kvenna en eiginmaður hennar Þorvaldur Gíslason varð fjórði meðal karla. Tvær systur Rúna og Elka Halldórsdætur sigruðu í sínum flokkum og afi þeirra hestamaðurinn góðkunni Svanur Halldórsson stóð þeim ekki að baki og sigraði í flokki heldri manna og kvenna. Að síðustu voru það svo mæðgur Oddný Jónsdóttir og dóttir hennar Guðný Birna sem unnu silfurverðlaunin í sínum flokkum.

Mývatn open

Tölt opinn flokkur

1. Þórður Þorgeirsson og Hrauna frá Húsavík, 7,90 2. Hafliði Halldórsson og Ásdís frá Lækjabotnum, 7,68 3. Hinrik Bragason og Höfgi frá Ártúnum, 7,43 4. Páll Bjarki Pálsson og Smella frá Flugumýri, 7,33 5. Mette Mannseth og Stígandi frá Leysingjastöðum, 7,18

Tölt áhugamenn

1. Vignir Sigurólason og Sigur frá Húsavík, 6,75 2. Gestur Júlíusson og Skelfir frá Skriðu, 6,60 3. Gísli Haraldsson og Flói frá Húsavík, 6,38 4. Kristján Sigtryggsson og Kyndill frá Hellulandi, 6,38 5. Oddný L. Guðnadóttir og Kleópatra frá Dalvík, 6,15

100 m flugskeið

1. Þórður Þorgeirsson og Ýr frá Jarðbrú, 9,56 sek. 2. Hinrik Bragason og Skemill frá Selfossi, 9,62 sek. 3. Magnús Skúlason og Arður frá Brún, 9,78 sek.

Aðrir vetrarleikar Gusts

Karlar

1.Bjarni Sigurðsson og Eldur frá Hóli, 12v. rauðstjörnóttur.

2. Ríkharður F. Jensen og Jökull frá Litlu-Tungu, 8v. hvítur.

3. Magnús Matthíasson og Dynur frá Hafsteinsstöðum, 7v. rauðblesóttur.

4. Þorvaldur Gíslason og Faxi frá Súluholti, 7v. rauður.

5. Sigurjón Gylfason og Eldjárn frá Ingólfshvoli, 6v. rauður.

Heldri menn og konur

1. Svanur Halldórsson og Gúndi frá Kópavogi, 10v. móálóttur.

2. Sæmundur Guðmundsson og Punktur frá Ölvaldsstöðum 2

3. Viktor Ágústsson og Kyndill frá Bjarnarnesi, 8v. jarpur.

4. Þór Vigfússon og Vordís frá Reykjavík, 10v. rauð.

5. Ármann Stefánsson og Goði frá Ytra-Hólmi, 7v. rauður.

Konur

1. Þóra Ásgeirsdóttir og Vaskur frá Vallanesi, 11v. brúnn

2. Oddný M. Jónsdóttir og Sjöstjarna frá Svignaskarði, 12v. brúnstjörnótt

3. Ragnhildur Benediktsdóttir og Röst frá Krossanesi, 10v. rauðblesótt

4.Helga R. Júlíusdóttir og Hrannar frá Skeiðháholti, 12v. jarpur

5.Hulda G. Geirsdóttir og Dimma frá Skagaströnd, 13v. brún

Unglingar/ungmenni

1. Elka Halldórsdóttir og Sproti frá Kópavogi 9v. rauður.

2. Tryggvi Þ. Tryggvason og Skrekkur frá Sandfelli, 11v. jarpur

3. Bjarnleifur S. Bjarnleifsson og Vængur frá Köldukinn, 9v. brúnskjóttur

4. Hólmfríður Kristjánsdóttir og Amor frá Hellu, Árskógsstr., 7v. móálóttur

5. Jana R. Reynisdóttir og Hrönn frá Tóftum, 11v. brún.

Börn

1.Sigrún Ý. Sigurðardóttir og Sörli frá Kálfholti, 12v. rauðblesóttur.

2. Guðný B. Guðmundsdóttir og Fjöður frá Svignaskarði, 17v. jarpvindótt.

3. Berta M. Waagfjörð og Gorbi frá Huga, 6v. mósóttur.

4. Guðlaug R. Þórsdóttir og Snjóalda frá Múlakoti, 7v. leirljós, bles.

5. Sólveig Ó. Guðmundsdóttir og Griffill frá Ölvaldsstöðum, 6v. rauðstjörn.

Pollar

1. Rúna Halldórsdóttir og Barón frá Kópavogi 9v rauðblesótt.

2. Helena Ríkey Leifsdóttir og Skröggur frá Tjörn 9v. rauðskjóttur.

3. Karen Ívarsdóttir og Logi úr Landeyjum 13v. rauður.

4. Sigrún Gyða Sveinsdóttir og Huginn frá Hörgshóli 6v. moldóttur.

5. Freyja Rut Magnúsdóttir og Flís frá Feti 5v. brún.

6.-7.Valdís Björk Guðmundsd. og Litli-Rauður frá Svignaskarði, 14v. rauður

6.-7.Auður Á. Waagfjörð og Gæsla frá Huga, 6v. rauðblesótt

Árshátíðarmót Mána haldið á Mánagrund

Opinn flokkur

1. Jón B. Olsen á Hljóm frá Kálfholti, 12 vetra

2. Jóhann Jónsson á Fjarka frá Hafsteinsstöðum, 11 vetra

3. Sveinbörn Bragason á Ritu frá Litlu-Tungu, 6 vetra

4. Hannes Ragnarsson á Ljóma frá Kílhrauni, 6 vetra

5. Arnar D. Hannesson á Blæ frá Hlíð, 14 v.

Konur

1. Svala R. Jónsdóttir á Glampa frá Fjalli, 9 v.

2.Helena Guðjónsdóttir á Hrafni frá Hala, 10 vetra

3. Ásdís Adolfsdóttir á Bliku frá Bakkakoti, 7 vetra

4.Eygló Einarsdóttir á Drottningu frá Vatnsleysu, 11 vetra

5.Sigrún Valdimarsdóttir á Fjöður frá Heiðarbrún, 7 vetra

Ungmenni

1. Sveinbjörn Bragason á Sleipni frá Litlu Tungu, 7 vetra

2.Hermann R. Unnarsson á Braga frá Sperli, 9 vetra

3.Elva B. Margeirsdóttir á Stiku frá Kirkjubæ, 9 vetra

4. Camila P. Sigurðardóttir á Krás frá Miðsitju, 8 vetra

5. Auður S. Ólafsdóttir á Tenor frá Rifshalakoti, 9 vetra

Börn

1. Sunna Guðmundsdóttir á Halifax frá Breiðabólstað, 12 vetra

2.Soffía R. Skúladóttir á Klerk frá Enni, 11 vetra

3.Ólöf R. Guðmundsdóttir á Vin frá Hoffelli, 15 vetra

4.Margrét L. Margeirsdóttir á Hyl frá Sandgerði, 8 vetra

5.Kristján Hlynsson á Vafa frá Kirkjubæ, 8 vetra

Pollar

1.Jóhanna M. Snorradóttir á Glóð frá Keflavík, 13 vetra

2.Rúnar Þ. Sigurðsson á Svörtu-Blesu frá Eyri, 9 vetra

3.Guðbjörg Gunnarsdóttir á Hulu frá Bakka, 7 vetra

4.Marsibil Sveinsdóttir á Pamelu frá Indriðastöðum, 14 vetra

5.Brynjar Guðnason á Rauð frá Njarðvík, 12 vetra

Annað vetrarmót Sleipnis á Selfossi

Opinn flokkur

1.Sigursteinn Sumarliðason, Þota, 7v., frá Úthlíð, f.: Gustur, Grund, m.: Litla-Dokka, Skálholti

2.Christina Lund, Trymbill frá Glóru Stefna frá Eyrarbakka, f.: Dagur, Kjarnholtum

3.Hugrún Jóhannsdóttir, Brimir 6v., frá Austurkoti, f.: Ísak, Egilsst. m.: Hrafntinna, Reykjavík

4.Brynjar J. Stefánsson, Stikla 6v., frá Voðmúlastöðum, Logi, Voðmúlast.

5.Sigurður Ó. Kristinsson, Kólga 5v., frá Háholti, f.: Víkingur, Voðmúlastöðum, m.: Kilja f. Háholti

Áhugamenn

1. Grímur Sigurðsson, Hilma 8v., frá Austurkoti, f.: Austri, Austurkoti, m.: Ólína, Hoftúnum

2.Haukur Baldvinsson, Glitnir 6v., frá Selfossi, f.: Hrannar, Skarði, m.: Gýgja, Skarði

3.Sigríður Harðardóttir, Hemja 6v., frá Dalbæ, f.: Hamur, Þóroddstöðum, m.: Þrá, Dalbæ

4.Kristján Larsen, Arnar 9v., frá Herríðarhóli, f.: Safír, Viðvík, m.: Bleik, Kópavogi

5.Linda Lundkvist, Iðja 6v., frá. Glóru, f.: Hrynjandi, Hrepphólum, m.: Djörfung, Glóru

Ungmenni

1.Emil Þ. Guðjónsson, Gunndís 6v., frá. Strönd, f.: Hljómur, Selfossi, m.: Tröð, Strönd

2.Sandra Hróbjartsdóttir, Hekla 5v., frá Oddgeirshólum, f.: Kveikur f. Miðsitju, m.: Barónessa, Oddgeirshólum

Unglingar

1.Jóhanna Magnúsdóttir, Goði 7v., frá Strönd, f.: Alskær, m.: Hnota, Strönd

2.Sigrún A. Brynjarsdóttir, Orka 13 v., frá. Selfossi, f.: Piltur, Sperðli, m.: Ögn, Hólmahjáleigu

3.Helga B. Helgadóttir, Askja 8v., frá Súluholti, f.: Eldur f. Súluholti, m.: Gjóska, Súluholti

4.Ástgeir R. Sigmarsson, Skjóni 13v., frá Hárlaugsstöðum, f.: Baldur, Bakka, m.: Rauðhetta, Hárlaugsstöðum

Börn

1.Hildur Ö. Einarsdóttir, Óskadís 6v., frá Halakoti, f.: Óður, Brún, m.: Freyja, Þóreyjarnúpi

2.Sigurður O. Karlsson, Ingi Hrafn 14v., frá Stokkseyri

3.Bjarni Sveinsson, Þór 12v., frá Borgarhóli, f.: Smári, Borgarhóli, Hrísla, Borgarhóli

4.Kristrún Steinþórsdóttir, Stjarni 11v., frá Oddgeirshólum, f.: Baldur, Bakka

5.Hjalti B. Hrafnkelsson, Leiknir 10v., frá Glóru, f.: Hrafn f. Holtsmúla, m.: Sunna, Holti

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Hestar — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 9. ágúst

Þriðjudaginn 12. maí

Föstudaginn 19. desember

Mánudaginn 7. júlí

Sunnudaginn 6. júlí

Laugardaginn 5. júlí

Föstudaginn 4. júlí

Fimmtudaginn 3. júlí

Miðvikudaginn 2. júlí

Þriðjudaginn 1. júlí

Mánudaginn 30. júní

Miðvikudaginn 5. mars

Laugardaginn 23. febrúar

Mánudaginn 19. nóvember

Sunnudaginn 12. ágúst

Laugardaginn 11. ágúst

Föstudaginn 10. ágúst

Fimmtudaginn 9. ágúst

Þriðjudaginn 7. ágúst

Mánudaginn 6. ágúst

Mánudaginn 2. júlí

Mánudaginn 19. mars

Föstudaginn 9. mars

Laugardaginn 24. febrúar

Föstudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 31. janúar

Þriðjudaginn 30. janúar

Mánudaginn 29. janúar


finnur.is